Við erum að vinna í grunninum og munum gera þennan draum að veruleika bráðlega.
Þróunarteymi
Við vitum að heilaþokan er raunveruleg og minningarnar fljótar að dofna. Barnasagan hjálpar þér að fanga dýrmætustu augnablikin á einfaldan hátt, og þú mátt tala í stað þess að skrifa, við skrifum niður.
Þrjú einföld skref og sagan um barnið þitt verður að veruleika.
12 kaflar og allt að 120 persónulegar spurningar leiða þig í gegnum bernsku barnsins, frá fæðingu, til leikskóla og lengra.
En þetta er ekki venjulegur spurningalisti, vefsíðan notar svörin þín til að dýpka samtalið og býr til persónulegar fylgispurningar sem byggja beint á því sem þú skrifar.
Skrifaðu á þínum eigin hraða. Framvindan vistast sjálfkrafa og bíður þín hvenær sem þér hentar. Þú getur hoppað á milli spurninga og kafla hvenær sem er, og þú getur alltaf breytt svörum afturvirkt.
Engin pressa að klára ákveðnar spurningar til að halda áfram með söguna.
Vefsíðan sér um að setja bókina saman í lokin byggða á svörunum þínum. Þú velur ritstíl, hvort sem það er Persónulegt, Gamansamur, Barnið segir, Ævintýralegur eða Hnitmiðaður, og kerfið setur saman barnasöguna í þeim stíl.
Þegar sagan er tilbúin færðu 5 hugmyndir að bókatitli sem þú getur valið úr eða skrifað þinn eigin. Að því loknu geturðu sótt barnasöguna sem PDF og jafnvel pantað prentaða bók, falleg og varanleg minning sem barnið getur alltaf leitað í. ✨
Gefðu barninu þínu gjöf sem varir, sögu bernskunnar skráða af þeim sem þekkir það best.
Fæðingin, fyrstu orðin, fyrstu skrefin. Persónulegar spurningar hjálpa þér að festa þessar dýrmætu minningar á blað.
Hvað gerir barnið þitt einstakt? Hvernig heldur það öllum á tánum? Þetta eru sögurnar sem barnið mun vilja lesa aftur og aftur á fullorðinsárum.
Þegar barnið þitt er fullorðið mun það geta lesið söguna um bernsku sína, skráða af þeim sem þekkir það best.
Gjafakóðinn er sendur með tölvupósti
Hér er dæmi úr barnasögu Emblu Bergsdóttur sem fæddist vorið 2020. Sjáðu hvernig niðurstaðan getur litið út.
Hvað heitir barnið þitt og hvenær og hvar fæddist það? Barnið mitt heitir Embla Bergsdóttir. Hún fæddist 15. mars 2020 á Landspítalanum í Reykjavík. Hún var 3,4 kg og 50 cm.
Hvernig var dagurinn sem barnið kom í heiminn, eða inn í líf þitt, og hvernig leið þér? Dagurinn var sérstakur á fleiri en einn hátt. Þetta var einmitt þegar COVID-faraldrinum var lýst yfir á Íslandi og heimurinn var farinn að lokast. Við fórum á spítalann í þögn og óvissu. Fjölskylda og vinir máttu ekki koma í heimsókn, og amma og afi sáu Emblu í gegnum skjáinn í fyrsta sinn. En þegar hún kom til sögunnar gleymdum við öllu öðru.
Hvenær fór barnið að ganga og manstu eftir því augnabliki? Embla fór að ganga þegar hún var 11 mánaða. Við vorum í stofunni og hún stóð upp við borðið, sleppti og tók þrjú skref. Ég grét. Hún leit á mig eins og hún skildi ekki af hverju ég væri svona.
Hver voru fyrstu orðin sem barnið sagði og hvernig brást fjölskyldan við? Fyrsta alvöru orðið var "mjaú" þegar við sáum kött í göngutúr. Hún sagði þetta svo skýrt og brosmilt. Við höfðum aldrei hlegið svona mikið af einu orði.
Gerðu söguna um barnið þitt að arfleifð sem það mun ávallt muna.
Persónulegar spurningar um lífið sem barnið þitt er að upplifa, kafla fyrir kafla.
Svaraðu með rödd eða lyklaborði, hvenær og hvar sem þér hentar.
Þú þarft ekki að leita að réttum kafla. Skrifaðu í kassann efst það sem gerðist í dag, við finnum kaflann sem sagan á heima í og búum til spurninguna sem hún svarar.
Tveir kaflar eru opnir án greiðslu. Engin greiðslukort. Engar skuldbindingar.
Skráðu þig inn eða stofnaðu nýjan aðgang
🔒 Gögn þín eru geymd á öruggan hátt.
Hvaða hluta sögunnar viltu huga að í dag?
Skrifaðu bara eins og þér dettur í hug. Við finnum réttan kafla fyrir söguna og búum til spurninguna sem hún svarar, svo að þú þurfir ekki að leita að réttum stað.
Við erum að leggja lokahönd á söguna um barnið þitt...
„Ég heiti María Björg og þegar ég eignaðist mitt fyrsta barn keypti ég dásamlega minningabók. Hún var með plássi fyrir 50 blaðsíður og ég fyllti nákvæmlega fimm þeirra, af mikilli samviskusemi."
Svo gerðist lífið. Bókin færðist neðar í bunkann, upp í hillu, og fannst loksins í flutningum nokkrum árum síðar. Þar stóð enn, með minni eigin rithönd: „Fyrsta tönnin kom…“. Restin af setningunni kom aldrei.
Það er nefnilega ekki þannig að okkur langi ekki að skrá þetta niður. Okkur langar það heitt og innilega, einhvern tímann seinna, þegar allir eru sofnaðir og eldhúsið er hreint. Þess vegna gerist það aldrei.
Barnasagan mín er hugsuð fyrir þennan raunveruleika. Í stað þess að þú horfir á auða blaðsíðu spyrjum við þig: hvernig fékk barnið nafnið sitt, hvað sagði það fyrst, hvað gerir það þegar það heldur að enginn sé að horfa. Þú svarar með einni setningu eða heilli síðu, og mátt tala í stað þess að skrifa ef hendurnar eru uppteknar. Við skrifum orðin þín niður jafnóðum. Og ef þig langar bara að segja frá því sem gerðist í dag, án þess að leita að kafla, þá skrifarðu það í kassann efst og við finnum honum stað í sögunni.
Svo raðast svörin saman í alvöru bók. Ekki lista af svörum, heldur samfellda frásögn með köflum, myndum og tímalínu, sem þú sækir sem PDF og lætur prenta og binda inn.
Á leiðinni safnarðu því sem gleymist fyrst: gullmolunum sem barnið segir (dóttir mín sagði alltaf „bagemí“ í staðinn fyrir spaghettí, og nei, ég myndi ekki muna það í dag, ég skrifaði það niður), hæðarmælingunum sem annars enda sem blýantsstrik á dyrakarminum og hverfa í næstu málningarumferð, og litlum hljóðbrotum af röddinni sjálfri. Strikin á karminum lifa hér af sem tímalína í bókinni, og hljóðbrotin fá QR-kóða aftast, svo röddin heyrist löngu eftir að hún er orðin fullorðinsrödd.
Amma og afi mega líka vera með. Þú sendir þeim hlekk, þau senda inn spurningar sem þau langar að fá svar við, og þú ræður alveg hverju þú svarar.
Þú byrjar ókeypis, tveir fyrstu kaflarnir eru opnir, og ef þér líst vel á er þetta ein greiðsla og engin áskrift.
Sagan um barnið þitt er að gerast núna. Það þarf ekki heilt kvöld til að grípa hana, bara nokkrar mínútur og eina spurningu.
Við sendum þér hvetjandi og persónulegar spurningar sem kalla fram dýrmætar minningar. Þú þarft ekki að eiga erfitt með að byrja eða vita hvað skal skrifa, við leiðum þig áfram skref fyrir skref.
Lífið með börnum er annasamt og tíminn dýrmætur. Þess vegna svararðu hvar og hvenær sem er, í símanum á meðan barnið sefur eða í tölvunni þegar ró kemst á. Og ef hendurnar eru uppteknar máttu tala í stað þess að skrifa, við skrifum orðin þín niður jafnóðum.
Úr svörum þínum verður til samfelld og vönduð frásögn um fyrstu árin og þroska barnsins þíns. Þetta er einstök gjöf sem varðveitir augnablikin sem annars gætu gleymst í hringiðu hversdagsins.
Svör við því helsta varðandi ferlið, öryggið og úrvinnsluna.
Við notum þetta til að skrifa frásögnina á réttan hátt. Hægt er að breyta þessu seinna.